Mál í kynningu


26.5.2017

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna Hvammsvirkjunar.

Athugasemdafrestur er til 6. júlí 2017

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2004-2016 vegna breytingar á afmörkun Hagalóns fyrir Hvammsvirkjun og legu Þjórsárdalsvegar. Deiliskipulag Hvammsvirkjunar og frummatsskýrsla skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum er kynnt samhliða aðalskipulagsbreytingunni.

Tillagan er aðgengileg hjá skipulagsfulltrúa á Dalbraut 12, Laugarvatni, hér á vefslóðinni sbf.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir og ábendingar þurfa að berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en 6. júlí 2017.