Mál í kynningu


5.9.2016

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Skútustaðahrepps, sorpflokkunarsvæði í landi Grímsstaða

Athugasemdafrestur er til 14. október 2016

Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Skútustaðahrepps 2011-2023 vegna sorpflokkunarsvæðis í landi Grímsstaða.

Tillagan er til sýnis til 14. október 2016 á skrifstofu Skútustaðahrepps að Hlíðavegi 6 á Mývatni, á heimasíðu sveitarfélagsins og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu Skútustaðahrepps eða á netfangið bjarni@thingeyjarsveit eigi síðar en 14. október 2016.