Mál í kynningu


27.5.2019

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna Skaftafells III og IV

Athugasemdafrestur er til 1. júlí 2019

Bæjarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030 þar sem skilgreint er nýtt svæði fyrir verslun og þjónustu í Skaftafelli III og IV (VÞ44).

Tillagan er til sýnis á bæjarskrifstofum að Hafnarbraut 27, á vef sveitarfélagsins www.hornafjordur.is og hjá Skipulagsstofnun.

Athugasemdir þurfa að berast á bæjarskrifstofur Hornafjarðar, Hafnarbraut 27 eða á skipulag@hornafjordur.is eigi síðar en 1. júlí 2019.