Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar og nýtt deiliskipulag vegna aukinna byggingarheimilda í íbúðarbyggð ÍB-602, Hofsósi
Athugasemdafrestur er til 19. júlí 2023
Sveitarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 vegna aukinna byggingarheimilda í íbúðarbyggð ÍB-602, Hofsósi. Samhliða er auglýst tillaga að nýju deiliskipulagi svæðisins.
Skipulagsgögn eru til sýnis á vef sveitarfélagsins www.skagafjordur.is.
Athugasemdir þurfa að berast á Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki, eða netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is eigi síðar en 19. júlí 2023.