Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga, vegna íbúðarbyggðar á Kirkjuholti
Athugasemdafrestur er til 7. ágúst 2023
Bæjarstjórn hefur auglýst tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 vegna nýrrar íbúðarbyggðar ÍB9 á Kirkjuholti í stað svæðis fyrir þjónustustofnanir (Þ9).
Skipulagsgögn eru til sýnis á vef sveitarfélagsins www.vogar.is.
Athugasemdir þurfa að berast á skrifstofu sveitarfélagsins, Iðndal 2, 190 Vogum, eða á netfangið byggingarfulltrui@vogar.is eigi síðar en 7. ágúst 2023.