Vestfjarðavegur (60) milli Bjarkalundar og Skálaness
Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu
Kynningartími stendur frá 27. október til 8. desember 2016.
Vegagerðin hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar. Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir.
Frummatsskýrslan er aðgengileg hér og á bæjarskrifstofu Reykhólahrepps, Hótel Bjarkalundi, Skipulagsstofnun og í Þjóðarbókhlöðunni.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 8. desember 2016 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.