Mál í kynningu


3.1.2020

Vestfjarðavegur um Dynjandisheiði og Bíldudalsvegur frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðavegi á Dynjandisheiði

Mat á umhverfisáhrifum - frummatsskýrsla í kynningu

  • Mynd frá Bíldudalsvegi

Kynningartími stendur frá 6. janúar til 17. febrúar 2020.

Vegagerðin hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum ofangreindrar framkvæmdar.

Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir. 

Frummatsskýrsla og viðaukar eru aðgengileg hér. Frummatsskýrsla er til kynningar hjá Bókasafni Bílddælinga, Bókasafninu Ísafirði, Skipulagsstofnun og í Þjóðarbókhlöðunni.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 17. febrúar 2020 til Skipulagsstofnunar eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.