Mál í kynningu


13.11.2020

Viðauki við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 - tillaga til kynningar

Athugasemdafrestur er til 8. janúar 2021

  • Mynd af forsíðu tillögu

Skipulagsstofnun leggur hér með fram til kynningar tillögu að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 ásamt umhverfismati, í samræmi við 11. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í tillögunni er sett fram stefna um loftslagsmál, landslag og lýðheilsu í tengslum við framkvæmd skipulagsmála og tekur hún eftir atvikum til allra viðfangsefna gildandi landsskipulagsstefnu. Auk þess felur tillagan í sér breytingar á gildandi landsskipulagsstefnu varðandi skipulag haf- og strandsvæða m.t.t. laga nr. 88/2018 um skipulag haf- og strandsvæða.

Tillagan er aðgengileg á vef landsskipulagsstefnu, www.landsskipulag.is, og á vef Skipulagsstofnunar, www.skipulag.is, og hana má einnig nálgast hér að neðan. Gögnin liggja jafnframt frammi til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík.

Kynningarfundur um tillöguna verður haldinn á vefnum fimmtudaginn 19. nóvember nk. kl. 14-16. Fundinum verður streymt á Facebook-síðu Skipulagsstofnunar og er ekki þörf á að skrá sig til að fylgjast með streyminu.

Allir sem þess óska geta gert athugasemdir við tillögu að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 og umhverfismat hennar. Frestur til að koma skriflegum athugasemdum á framfæri við Skipulagsstofnun er til og með 8. janúar 2021.

Athugasemdum skal skilað bréflega til Skipulagsstofnunar, með tölvupósti á netfangið landsskipulag@skipulag.is eða um athugasemdagátt á vef landsskipulagsstefnu www.landsskipulag.is.

Tillaga að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026