Mál í kynningu


5.3.2024

Vikurnám við Búrfell, Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Umhverfismat framkvæmda - matsáætlun í kynningu

Umsagnarfrestur er til 5. apríl 2024

Hólasmári ehf. hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats fyrir efnistöku á Búrfellshólmum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Matsáætlun er aðgengileg á Skipulagsgátt.   

Allir geta kynnt sér matsáætlunina og veitt umsögn í gegnum Skipulagsgáttina eigi síðar en 5. apríl 2024.