Mál í kynningu


8.2.2023

Vindorkugarður Grímsstöðum II í Skaftárhreppi

Mat á umhverfisáhrifum - Matsáætlun í kynningu

  • Grímmstadir 2

Umsagnarfrestur er til 10. mars 2023

Qair Iceland hefur lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna umhverfismats fyrir vindorkugarði að Grímsstöðum II í Meðallandi, Skaftárhreppi

Matsáætlunin liggur frammi til kynningar á skrifstofu Skaftárhrepps, Klausturvegi 4, Kirkjubæjarklaustri og hjá Skipulagsstofnun Borgartúni 7b frá 9. febrúar til 10. mars 2023.

Matsáætlunin er aðgengileg hér

Allir geta kynnt sér áætlunina og veitt umsögn.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 10. mars 2023 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.