Mál í kynningu


5.11.2020

Efnistaka í landi Skorholts í Hvalfjarðarsveit

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

  • Efnistaka Skorholt

Frestur til athugasemda er til 23. nóvember 2020.

BM Vallá hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum efnistöku í landi Skorholts í Hvalfjarðarsveit.

Tillagan er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 23. nóvember 2020 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.