Fréttir


20.3.2023

Endurnýjun vindmylla í Þykkvabæ

Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að endurnýjun vindmylla í Þykkvabæ, sveitarfélaginu Rangárþingi ytra, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar, greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir umsagnaraðila og svör framkvæmdaraðila má nálgast hér. 

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 21. apríl 2023.