Fréttir


  • Sauðfé

28.4.2016

Eyðing áhættuvefja frá Sláturhúsi KVH, Hvammstanga

Mat á umhverfisáhrifum, ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eyðing áhættuvefja frá sláturhúsi KVH á Hvammstanga skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 30. maí 2016.