Fáskrúð, vatnsmiðlun í Hvanná í Dalabyggð
Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að vatnsmiðlun í Hvanná skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar, greinargerð framkvæmdaraðila og umsagnir umsagnaraðila má nálgast hér.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 22. maí 2023.