Frekari snjóflóðavarnir undir Bjólfshlíðum á Seyðisfirði
Umhverfismat framkvæmda - ákvörðun um matsskyldu
Framkvæmd ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhugaðar frekari snjóflóðavarnir undir Bjólfshlíðum á Seyðisfirði skulu ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 111/2021.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar er aðgengileg hér. Greinargerð framkvæmdaraðila, umsagnir umsagnaraðila og svör framkvæmdaraðila.
Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 23. júní 2023.