Fréttir


23.3.2021

Lyfjaframleiðsla Pharmarctica á Grenivík

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Framkvæmd ekki háð mati

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að lyfjaframleiðsla Pharmarctica á Grenivík, Grýtubakkahreppi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000.

Hér má skoða ákvörðun Skipulagsstofnunar.

Ákvörðunina má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 26. apríl 2021.