Fréttir


28.8.2014

Framleiðsluaukning á eldi regnbogasilungs í allt að 1.100 tonna ársframleiðslu í Önundarfirði á vegum Dýrfisks hf.

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur ákveðið að framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framleiðsluaukning á eldi regnbogasilungs í allt að 1.100 tonna ársframleiðslu í Önundarfirði, Ísafjarðarbæ, á vegum Dýrfisks hf. skuli háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 30. september 2014.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er einnig að finna hér.