Fréttir


4.9.2014

Allt að 16.000 tonna framleiðsla á laxi og regnbogasilungi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um tillögu að matsáætlun

Skipulagsstofnun hefur fallist á tillögu framkvæmdaraðila að matsáætlun með athugasemdum.
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um tillögu Dýrfisks hf. og Fjarðalax ehf. að matsáætlun um framleiðslu á laxi og regnbogasilungi í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði, samtals allt að 16.000 tonn. Fallist er á tillöguna með athugasemdum. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má skoða hér.