Fréttir


12.1.2015

Landsskipulagsstefna og skipulagsgerð sveitarfélaga - kynningarfundir

Skipulagsstofnun kynnir auglýsta tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026, en haldnir verða opnir fundir á eftirtöldum stöðum:

  • Ísafirði 14. janúar kl. 12.30-14.30 í Háskólasetrinu
  • Akureyri 21. janúar kl. 15-17 á Hótel Kea
  • Blönduósi 22. janúar kl. 13-15 í Eyvindarstofu
  • Borgarnesi 26. janúar kl. 14-16 í Landnámssetrinu
  • Egilsstöðum 27. janúar kl. 15-17 á Hótel Héraði
  • Selfossi 28. janúar kl 15-17 á Hótel Selfossi
  • Reykjavík 29. janúar kl. 15-17 á Nauthóli, en fundurinn verður einnig sendur út í gegnum heimasíðu Skipulagsstofnunar.

 

Á fundinum verður tillagan kynnt auk þess sem að fjallað verður sérstaklega um framfylgd landsskipulagsstefnu í skipulagsgerð sveitarfélaga svo sem við endurskoðun aðalskipulags.

Tillöguna, ásamt umhverfismati og fylgiskjali, Skipulagsmál á Íslandi 2014, má nálgast hér í síðunni. Frestur til að skila athugasemdum er til 13. febrúar 2015, sjá nánar í auglýsingu.

 

Auglýst tillaga að landsskipulagsstefnu:

Landsskipulagsstefna 2013-2024 - Tillaga til auglýsingar 

Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir (pdf útgáfa, ágúst 2014)