Fréttir


10.12.2010

Strandavegur (634) milli Djúpvegar og Geirmundarstaðavegar, Strandabyggð

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að lagning Strandavegar (634), Djúpvegur-Geirmundarstaðavegur, í Strandabyggð skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 11. janúar 2011.