Fréttir


  • Virkjun í Hverfisfljóti

10.2.2022

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Skaftárhrepps vegna virkjunar í Hverfisfljóti við Hnútu

Skipulagsstofnun staðfesti 10. febrúar 2022 breytingu á Aðalskipulagi Skaftárhrepps 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 20. janúar 2022.

Í breytingunni felst að stefnu um iðnaðarsvæði I2 í landi Dalshöfða er breytt vegna áforma um að reisa allt að 9,3 MW rennslisvirkjun í Hverfisfljóti við Hnútu í stað allt að 40 MW virkjunar.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.