Fréttir


27.4.2011

Framleiðsla á 3.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Arnarfirði á vegum Arnarlax ehf.

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur ákvarðað að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framleiðsla á 3.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Arnarfirði á vegum Arnarlax ehf. skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 28. maí 2011.
                                        Skipulagsstofnun