Fréttir


28.7.2011

Jarðborun, eftir heitu vatni, á Sveinseyrarhlíð í Tálknafirði, Tálknafjarðarhreppi

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að borun eftir heitu vatni á Sveinseyrarhlíð í Tálknafirði, Tálknafjarðarhreppi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 30. ágúst 2011.