Fréttir


28.7.2011

Djúpvegur (61) um Seljalandsós og Seljalandsá í Álftafjarðarbotni, Súðavíkurhreppi

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmd

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmd á Djúpvegi (61) um Seljalandsós og Seljalandsá í Álftafjarðarbotni, Súðavíkurbreppi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 107/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur  til 30. ágúst 2011.