Fréttir


12.8.2011

Þríhnúkagígur, Kópavogi. Aðgengi ferðamanna - aðkomuvegur, þjónustumiðstöð og aðstaða til skoðunar

Tillaga að matsáætlun í kynningu

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 30. ágúst 2011.

Þríhnúkar ehf. hafa lagt fram tillögu að matsáætun vegna Þríhnúkagígs í Kópavogsbæ. Tillaga að matsáætlun liggur frammi til kynningar frá 12. til 30. ágúst 2011 hjá Skipulagsstofnun og á Netinu. Allir hafa rét til að kynna sér tillöguna og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 30. ágúst 2011 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík eða á skipulagsstofnun@skipulagsstofnun.is. Unnt er að nálgast tillöguna hér.