Fréttir


3.11.2011

Varp dýpkunarefna vegna viðhaldsdýpkunar í Landeyjahöfn, Rangárþingi eystra

Mat á umhverfisáhrifum – Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að varp dýpkunarefna vegna viðhaldsdýpkunar í Landeyjahöfn skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 5. desember 2011.