Fréttir


5.1.2012

Akureyrarflugvöllur, gerð flughlaðs

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að gerð flughlaðs á Akureyrarflugvelli skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála (Skúlagötu 21) og er kærufrestur til 7. febrúar 2012. Vakin er athygli á því að í ákvörðun Skipulagsstofnunar er sagt að kæra skuli til umhverfisráðherra, en vegna tilkomu laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála verða ákvarðanir Skipulagsstofnunar frá og með 1. janúar 2012 kæranlegar til hinnar nýju nefndar í stað umhverfisráðherra áður.