Fréttir


19.1.2012

Eldi á bleikjuseiðum og borra í Fellsmúla, Rangárþingi ytra

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eldi á allt að 100 tonnum af bleikjuseiðum og 250 tonnum af borra í Fellsmúla, Rangárþingi ytra, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 21. febrúar 2012.