Fréttir


26.1.2012

Dalsbraut, frá aðkomuvegi að Lundarskóla að Miðhúsabraut, Akureyrarbæ

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að lagning Dalsbrautar, frá aðkomuvegi að Lundarskóla að Miðhúsabraut, Akureyrarbæ, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála (sbr. 25. gr. laga nr. 131/2011) og er kærufrestur til 28. febrúar 2012.