Fréttir


2.3.2012

Málstofa um miðhálendi Íslands 29. mars

Skipulagsstofnun heldur málstofu um miðhálendi Íslands fimmtudaginn 29. mars 2012 kl. 13.00 til 16.00 á Hilton Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík. Málstofan er hluti af vinnu við mótun landsskipulagsstefnu og dagskráin er eftirfarandi:

1.      Ferðamennska á miðhálendi Íslands.

2.      Hlutverk umhverfismats.

3.      Áætlanir ríkisins á landsvísu, hvað eru þær að segja um miðhálendið?

4.      Aðalskipulagsáætlanir sveitarfélaganna og miðhálendið.

5.      Kynning og umræður um tillögur að stefnumörkun um miðhálendið.


Fundurinn er opinn og öllum er heimil þátttaka en tilkynningar um þátttöku sendist á netfangið
landsskipulag@skipulagsstofnun.is í seinasta lagi 28. mars.