Fréttir


22.3.2012

Stækkun aflþynnuverksmiðju Becromal, Akureyri

Ákvörðun um matsskyldu tilkynningaskyldrar framkvæmdar

Skipulagsstofnun hefur ákvarðað að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að stækkun aflþynnuverksmiðju Becromal á Krossanesi, Akureyri, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.  Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála (sbr. 25. gr. laga nr. 131/2011) og er kærufrestur til 24. apríl 2012.