Fréttir


27.8.2012

Landsskipulagsstefna - Greinargerð um samráðsfundinn 17. ágúst 2012

Fjallað var um drög að landsskipulagsstefnu

Um 110 einstaklingar sóttu samráðsfundinn um drög að landsskipulagsstefnu sem haldinn var á Hótel Reykjavík Natura 17. ágúst. Skipulagsstofnun hefur tekið saman greinargerð um samráðsfundinn og byggt er á punktum úr hringborðsumræðum og þar komu fram fjölmargar ábendingar og athugasemdir sem munu nýtast til að bæta drögin að landsskipulagsstefnu áður en þau verða auglýst.