Fréttir


1.2.2013

Breyting á legu háspennustrengs frá Skansfjöru að tengihúsi Landsnets á Skansinum, Vestmannaeyjabæ

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breyting á legu háspennustrengs frá Skansfjöru að tengihúsi Landsnets á Skansinum skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 4. mars 2013.