Fréttir


1.2.2013

Breyting á sorpurðunarstað, Fíflholt á Mýrum, Borgarbyggð

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun Skipulagsstofnunar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breyting á sorpurðunarstað í Fíflholtum á Mýrum, Borgarbyggð, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum, samkvæmt lögum nr 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun Laugavegi 166, 105 Reykjavík, hana er einnig að finna hér. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 4. mars 2013.