22.2.2013
Kynning á nýrri skipulagsreglugerð nr. 90/2013
Skipulagsstofnun og umhverfis- og auðlindaráðuneytið mun kynna nýja
skipulagsregluger ð nr. 90/2013 og
framkvæmdaleyfisreglugerð nr. 772/2012 á fimm stöðum um landið nú í mars. Á fundinum munu fulltrúar Skipulagsstofnunar og ráðuneytisins gera grein fyrir nýrri skipulagsreglugerð og svara fyrirspurnum. Gert er ráð fyrir tveggja klukkustunda fundi fyrir kynningu og umræður og er fundurinn öllum opinn.
Búið er að ákveða tímasetningu og staðsetningu fundanna með eftirfarandi hætti:
- Hella, mánudaginn 4. mars kl. 10-12.
- Akureyri, fimmtudaginn 7. mars kl. 10-12.
- Egilsstaðir, þriðjudaginn 12. mars kl. 10-12.
- Ísafjörður, miðvikudaginn 13. mars kl. 13-15.
- Reykjavík, þriðjudaginn 19. mars kl. 13-15.