Fréttir


15.3.2013

Samráðsfundur Skipulagsstofnunar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélaga 2013

Árlegur samráðsfundur Skipulagsstofnunar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélaganna verður haldinn fimmtudaginn 11. og föstudaginn 12. apríl á Hótel Cabin, Borgartúni 32 í Reykjavík. Fundurinn er ætlaður kjörnum fulltrúum og starfsmönnum sveitarfélaga í skipulagsmálum.

Meðal umræðuefna á fundinum verða: Landsskipulagsstefna, skipulagsmál á höfuðborgarsvæðinu, nýtingaráætlun fyrir strandsvæði Arnarfjarðar, ný skipulagsreglugerð, framkvæmdaleyfisreglugerð, landupplýsingar, ný lög um menningarminjar og frumvarp til náttúruverndarlaga. Einnig verður farið í kynnisferð um Mosfellsbæ.

Fundurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu en þeir þurfa að greiða sjálfir fyrir gistingu, kvöldverð á fimmtudegi og hádegisverð á föstudegi. Þátttakendur eru hvattir til að tryggja sér gistingu sem fyrst en mörg hótel og gistiheimili á breiðu verðbili eru í nágrenni fundarstaðarins.

Dagskrá fundarins ásamt skráningarblaði verður birt í næstu viku.