Fréttir


10.6.2013

Breyting á legu Prestbakkalínu 1 á Skeiðarársandi og Breiðamerkursandi í Sveitarfélaginu Hornafirði

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnunar hefur tekið ákvörðun um að breyting á legu Prestbakkalínu 1 á Skeiðarársandi og Breiðamerkursandi í Sveitarfélaginu Hornafirði, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 11. júlí 2013.