Fréttir


20.6.2013

Breyting á legu Ísafjarðarlínu 1 og lagning jarðstrengs, Ísafjarðarbæ

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að endurnýjun á hluta Ísafjarðarlínu 1, milli tengivirkja í Breiðdal og botni Skutulsfjarðar skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 22. júlí 2013.