Fréttir


5.7.2013

Aukin framleiðsla á laxi á vegum Fjarðalax ehf. í Fossfirði, Arnarfirði, um 4.500 tonn, Vesturbyggð

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að aukin framleiðsla á laxi í Fossfirði um 4.500 tonn skuli  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 9. ágúst 2013.