Fréttir


16.8.2013

Eldi á bleikju og borra vestan Grindavíkur

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun telur að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að allt að 3000 tonna eldi á bleikju og borra vestan Grindavíkur skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Hana er einnig að finna hér.  Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 17. september 2013.