Fréttir


30.8.2013

Neskaupstaðalína 2, Lagning jarðstrengs frá Eskifirði til Neskaupstaðar

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Neskaupstaðalína 2, lagning jarðstrengs frá Eskifirði til Neskaupstaðar skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Hana er einnig að finna hér.  Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 1. október 2013.