Fréttir


14.11.2013

Sjóvarnir á Vatnsleysuströnd, Vogum

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdirnar skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhugaðar sjóvarnir á Vatnsleysuströnd skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.br. um mat á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Hana er einnig að finna hér.  Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 13. desember 2013.