Fréttir


27.1.2014

Urðunarstaður í landi Höskuldsstaða í Dalabyggð

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdirnar skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að urðunarstaður í landi Höskuldsstaða í Dalabyggð, skuli ekki háður mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík.  Hana er einnig að finna hér.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 3. mars 2014.