Fréttir


20.2.2014

Gas- og jarðgerðarstöð SORPU bs. Álfsnesi

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matskyldu framkvæmdar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að gas- og jarðgerðarstöð SORPU bs. á Álfsnesi, Reykjavík, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 24. mars 2014.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má einnig skoða hér.