Fréttir


6.3.2014

Allt að 4.000 tonna ársframleiðsla regnbogasilungs við Snæfjallaströnd í Ísafjarðardjúpi á vegum Dýrfisks hf.

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matskyldu framkvæmdar

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að allt að 4.000 tonna ársframleiðsla regnbogasilungs við Snæfjallaströnd í Ísafjarðardjúpi á vegum Dýrfisks hf., skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 11. apríl 2014.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má einnig skoða hér.