Fréttir


3.4.2014

Náma við Þeistareykjaveg, Norðurþingi.

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu 

Skipulagsstofnun telur ekki tilefni til að framkvæmdin verði háð mati.

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að ný náma við Þeistareykjaveg í Norðurþingi, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 5. maí 2014.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má einnig skoða hér.