Fréttir


30.4.2014

Breyting á eldi, lax í stað þorsks, í sjókvíum Krossaness ehf. innan við Brimnes og Haganes í Eyjafirði

Mat á umhverfisáhrifum - ákvörðun um matsskyldu

Skipulagsstofnun hefur ákveðið að framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breyting á eldi, lax í stað þorsks, í sjókvíum Krossaness ehf. innan við Brimnes og Haganes í Eyjafirði skuli háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 3. júní 2014.

Ákvörðun Skipulagsstofnunar er einnig að finna hér.