Fréttir


2.5.2014

Flutningsæðar frá Hverahlíð til Hellisheiðarvirkjunar

Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu  framkvæmda

Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að lagning flutningsæða frá Hverahlíð til Hellisheiðarvirkjunar, Sveitarfélaginu Ölfusi, skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.

Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einnig að finna hér

Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur til 4. júní 2014.