Fréttir


  • Olafurarnason5580

1.9.2022

Ólafur Árnason settur forstjóri Skipulagsstofnunar

Innviðaráðherra hefur sett Ólaf Árnason, forstöðumann nýsköpunar og þróunar hjá Skipulagsstofnun, í embætti forstjóra stofnunarinnar frá 1. september til 31. desember 2022.

Ólafur er með meistaragráðu í umhverfismati, umhverfisstjórnun og skipulagsmálum frá Oxford Brookes háskóla og MPM gráðu í verkefnisstjórnun frá Háskólanum í Reykjavík. Ólafur hefur starfað að skipulagsmálum og umhverfismati síðustu tvo áratugi - innan stjórnsýslunnar, við ráðgjöf, kennslu og rannsóknir. Síðastliðin tvö ár hefur Ólafur starfað sem forstöðumaður nýsköpunar og þróunar hjá Skipulagsstofnun og staðgengill forstjóra.

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir lét af störfum hjá stofnuninni 1. september eftir að hafa sinnt embætti forstjóra Skipulagsstofnunar frá árinu 2013. Starfsfólk Skipulagsstofnunar færir henni þakkir fyrir samstarfið og óskar henni velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.