Fréttir


21.2.2023

Opinn kynningarfundur vegna Eldisgarðs Samherja á Reykjanesi

Mat á umhverfisáhrifum - kynning á umhverfismatsskýrslu

Fimmtudaginn 23. febrúar kl. 17-19, Courtyard by Marriott, Reykjanesbæ.

Skipulagsstofnun vekur athygli á því að Samherji stendur fyrir kynningarfundi um mat á umhverfisáhrifum Eldisgarðs í Auðlindagarði HS Orku á Reykjanesi, Reykjanesbæ. 

Fundurinn verður í formi opins húss og boðið verður upp á léttar veitingar.

Íbúum og öllu áhugafólki um atvinnuuppbyggingu á svæðinu er boðið að mæta svo að sjónarmið sem flestra komi fram.